Salvör Gissurardóttir


slóðir og ábendingar um efni


Til fróðleiks fyrir þá sem áhuga hafa á fræðilegri umfjöllun og samfélagsgagnrýni um hið netvædda og sítendgda samfélag sem við siglum hraðbyri inn í:

KNOWING KNOWLEDGE

George Siemens gaf nýlega út bókina Knowing Knowledge. Siemens er upphafsmaður námskenningar sem við hann er kennd og heitir "connectivism" eða tengistefna. Bók hans fæst á Netinu og væntanlega líka síðar í bókabúðum en hægt er líka að hlaða út útgáfu af henni (án myndefnis) á þessari slóð:
http://www.elearnspace.org/KnowingKnowledge_LowRes.pdf
Siemens hefur sett upp wiki þar sem hann vonar að lesendur taki þátt í að endurskrifa bókina með honum:
http://ltc.umanitoba.ca/KnowingKnowledge/index.php/Main_Page

THE FUTURE OF IDEAS

Lawrence Lessig er heimsþekktur lögfræðingur, sérstaklega sem einn af upphafsmönnum Creative Commons og hann hefur bent á hversu mikið umhverfi höfundarréttar er á skjön við þá menningu sem nú vex upp í netheimum. Bækur Lessig eru á Netinu(Free Culture, The Future of Ideas, Code). Sjá nánar http://www.lessig.org/blog/

THE WEALTH OF NETWORKS

Yochai Benkler skrifaði bókina The Wealth of Networks - How Social Production Transforms Markets and Freedom Þessi bók er einnig á Netinu:
http://www.benkler.org/wealth_of_networks/index.php/Main_Page

WIKINOMICS

Bók væntanleg í desember 2006
Sjá nánar á vefslóðinni http://www.wikinomics.com/